Háttsettur bandarískur stjórnarerindreki segir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi haft bein afskipti af rannsókn stjórnvalda í Úkraínu á Joe Biden. Þetta kom meðal annars fram við yfirheyrslur leyniþjónustunefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gær.
Áður hafði Bill Taylor, starfandi sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu, sagt að starfsmaður sendiráðsins hefði fengið upplýsingar um að Trump þrýsti á rannsókn á Biden.
Taylor hafði áður sagt í skriflegum vitnisburði að Trump hefði sett það skilyrði fyrir aðstoð við Úkraínu að andvirði nær 400 milljóna dala að forseti landsins, Volodimír Zelenskí, fyrirskipaði rannsóknir á Biden, sem sækist nú eftir því að verða forsetaefni demókrata, og meintum afskiptum Úkraínumanna af kosningunum í Bandaríkjunum. Tvö önnur vitni hafa staðfest þetta, að sögn The Wall Street Journal. Trump óskaði eftir rannsóknunum í símasamtali við Zelenskí 25. júlí. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Taylor sagði í gær að Trump hefði rætt málið við Gordon Sondland, sendiherra Bandaríkjanna hjá Evrópusambandinu, daginn eftir samtalið við Zelenskí og spurt hann um „stöðuna á rannsóknunum“. Taylor sagði einnig að aðstoðarmaður sinn hefði spurt Sondland eftir samtalið við Trump hvaða skoðun forsetinn hefði á Úkraínu. „Sondland sendiherra svaraði að Trump forseti hefði meiri áhuga á rannsókninni á Biden,“ sagði Taylor.
Trump fylgdist ekki með vitnaleiðslunum í gær og sagði þær galdrafár og að hann væri of upptekinn til þess að eyða tíma sínum í að horfa á.