Flokkar hliðhollir Alexander Lúkasjenkó, forseta Hvíta-Rússlands, fengu öll 110 þingsætin í þingkosningunum í landinu sem fram fóru í gær. Stjórnmálaskýrendur segja að brögð hafi verið í tafli og að úrslitin séu ómarktæk.
Niðurstöður kosninganna voru opinberaðar í morgun. Áður höfðu fulltrúar flokka, sem andsnúnir eru forsetanum, tvö þingsæti.
Lúkasjenkó, sem stundum hefur verið kallaður „Síðasti einræðisherra Evrópu“ er 65 ára og hefur verið forseti Hvíta-Rússlands frá árinu 1994. Á þeim tíma hafa verið haldnar fjölmargar kosningar og hafa alþjóðlegir kosningaeftirlitsmenn gert athugasemdir við framkvæmd og niðurstöður flestra þeirra. Forsetakosningar verða í landinu á næsta ári og Lúkasjenkó tilkynnti í gær, þegar hann gekk að kjörborðinu, að hann myndi bjóða sig fram enn og aftur.
Við það tækifæri sagðist hann vera meðvitaður um að vestræn ríki fylgdust með framgangi kosninganna, en að Hvít-Rússar hefðu síðasta orðið. „Við boðum til þessara kosninga í okkar landi fyrir okkar fólk, til að bæta stöðuna og við höldum þær á þann þátt sem við skiljum.“
Yfirvöld í Hvíta-Rússlandi greindu frá því í morgun að kosningaþátttaka hefði verið 77% og að meira en 35% hefðu verið búin að kjósa fyrir fram.
Fulltrúar mannréttindasamtaka, sem fylgdust með framkvæmd kosninganna í gær, gerðu m.a. athugasemd við að kosningaeftirlitsmönnum var vísað á dyr, þeim var meinað að taka myndir og aðgengi þeirra var heft.