Pólskur heilbrigðisstarfsmaður á fertugsaldri er ákærður fyrir að myrða sex manns í Þýskalandi. Honum er gert að sök að hafa gefið fólkinu sem var í hans umsjá of stóran skammt af insúlíni. Réttarhöld yfir manninum hófust í dag og gert er ráð fyrir að þeim ljúki í maí á næsta ári.
Maðurinn hefur verið nafngreindur sem Grzegorz Stanislaw W. og er 38 ára gamall. Hann er sjálfur með sykursýki ólíkt fórnarlömbum sínum og átti hann því auðvelt með að komast yfir lyfið.
Málið minnir óhuggulega mikið á mál þýska raðmorðingjans Niels Hoegel sem myrti 85 sjúklinga sem voru í hans umsjá en Hoegel er hjúkrunarfræðingur. Hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrr á þessu ári.
Stanislaw er einnig ákærður fyrir að þrjú morðtilræði sem og fyrir að stela frá fórnarlömbum sínum. Minnsta mögulega refsing er 15 ára fangelsi, verði hann fundinn sekur.
Á tæpu ári eða frá apríl 2017 til febrúar 2018 fór maðurinn í vitjanir til að minnsta kosti 69 einstaklinga. Mögulega gætu því fórnarlömb hans verið fleiri, að því er fram kemur í þýskum fjölmiðlum um málið. Einstaklingarnir búa á mismunandi svæðum í Þýskalandi, allt frá Bavaria í suðri til Hanover í norðri.
Í ræðu saksóknara í málinu kom fram að maðurinn hataði vinnuna sína innilega. Hann hafi því tekið á það ráð að myrða skjólstæðinga sína til að forðast að vera rekinn. Hann sagði sálfræðingi sínum í fangelsinu að honum „þætti þetta leitt“ og væri fullur eftirsjár.
Hann sat í fangelsi í Póllandi í sex ár fyrir svik og var látinn laus árið 2014. Hann vildi ekki tjá sig fyrir rétti í dag og samkvæmt lögmanni hans mun hann ekki gera það.