Kvikasilfurmengun ógnar lífríkinu

Af vef Amnesty International í Kanada

Jianne Turtle er 13 ára Anis­hinaabe-frum­byggi í samfé­laginu Grassy Narrows í Ontario í Kanada sem berst fyrir betri framtíð ásamt öðrum ungmennum í samfé­laginu. Hún segir að stjórn­völd hafi rætt málin mikið en ekki gripið til neinna aðgerða.

Íbúar Grassy Narrows-samfé­lagsins urðu illa fyrir barðinu á kvikasilf­ur­eitrun eftir að stjórn­völd á 7. áratugnum leyfðu verk­smiðju að losa 10 tonn af úrgangi út í ána á svæðinu. Skað­legra áhrifa þess gætir enn í dag, segir í bréfi til stjórnvalda í Kanada frá Amnesty International. Á vef Íslandsdeildar Amnesty er fólk hvatt til að skrifa undir bréfið og krefja stjórn­völd í Kanada um að vernda heilsu Grassy Narrows-samfé­lagsins.

Af vef Amnesty International í Kanada

„Fisk­veiðar eru mikil­vægur þáttur í lífi samfé­lagsins. Í rúm fimmtíu ár hefur kvikasilfur mengað fiskinn sem gerir hann hættu­legan til mann­eldis. Ástandið á svæðinu hefur haft slæm áhrif á heilsu íbúa Grassy Narrows og grafið undan arfleifð þeirra og menn­ingu. Stjórn­völd hafa lítið gert til að bæta úr ástandinu þrátt fyrir að um sé að ræða eitt alvar­leg­asta heil­brigð­ismál landsins. Árið 2017 lofuðu stjórn­völd að takast á við vandann „í eitt skipti fyrir öll“. Til að standa við það þarf að hreinsa ána, veita sérhæfða heil­brigð­is­þjón­ustu og greiða samfé­laginu skaða­bætur.

Ungmenni Grassy Narrows-samfé­lagsins gefast ekki upp fyrr en stjórn­völd standa við loforð sín. Kanada verður að bæta það sem kvikasilfrið hefur rænt íbúa Grassy Narrows,“ segir á vef Amnesty. 

Á hverju ári í kring­um alþjóðlega mann­rétt­inda­dag­inn 10. des­em­ber safn­ast millj­ón­ir bréfa, korta, SMS-ákalla og und­ir­skrifta í gegn­um alþjóðlegu mann­rétt­inda­sam­tök­in Am­nesty In­ternati­onal þar sem skorað er á stjórn­völd að gera um­bæt­ur í mann­rétt­inda­mál­um.

„Þessi ein­staki sam­stöðumátt­ur skil­ar raun­veru­leg­um breyt­ing­um í lífi þeirra sem minnst mega sín. Á hverju ári eru sam­viskufang­ar leyst­ir úr haldi, fang­ar hljóta mannúðlegri meðferð, þolend­ur pynd­inga sjá rétt­læt­inu full­nægt, fang­ar á dauðadeild eru náðaðir eða ómannúðlegri lög­gjöf breytt,“ seg­ir í til­kynn­ingu frá Am­nesty á Íslandi.

Hér er hægt að lesa um mál­in og skrifa und­ir

Amnesty International
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert