Maltneski viðskiptamaðurinn Yorgen Fenech hefur verið ákærður fyrir aðild hans að morðinu á maltnesku blaðakonunni Daphne Caruana Galizia árið 2017.
Fenech neitaði sök er hann kom fyrir dómara í Valletta í kvöld, þar sem fjölskyldumeðlimir blaðakonunnar voru viðstaddir. Rannsókn á morði Galizia hefur skekið ríkisstjórn landsins, en tveir ráðherrar hafa sagt af sér embætti og aðalaðstoðarmaður forsætisráðherrann einnig. Þá hafa Möltubúar krafist afsagnar forsætisráðherrans Joseph Muscat.
Þrír bíða réttarhalda vegna morðsins á blaðakonunni, en lögregla vinnur nú að rannsókn á því hver hafi fyrirskipað morðið og hvers vegna.
Fenech var handtekinn í síðustu viku er hann reyndi að flýja land á snekkju sinni og fundaði forsætisráðherrann með ráðherrum sínum fyrr í vikunni um það hvort mæla ætti með því við forseta landsins að kaupsýslumanninum yrði veitt sakaruppgjöf gegn því að hann veitti upplýsingar um málið, eins og hann hafði óskað.
Ríkisstjórnin komst að þeirri niðurstöðu að með því yrði ekki mælt við forseta landsins. „Ég lét lokaákvörðunina í hendur starfssystkina minna sem ákváðu að þetta væri ekki hæft til veitingar sakaruppgjafar,“ sagði forsætisráðherrann á blaðamannafundi.