Panduleni Itula, 62 ára fyrrverandi tannlæknir, sem er í SWAPO en bauð sig fram sem óháð forsetaefni í forsetakosningunum í Namibíu í lok síðasta mánaðar, hyggst stefna yfirkjörstjórn landsins eftir kosningarnar.
Þetta kemur fram á vef The Namibian.
Sitjandi forsetinn Hage Geingob hefur að sögn yfirvalda fengið rúmlega 56% talinna atkvæða en Italu um 30% atkvæða.
SWAPO hefur verið við völd í Namibíu frá því að landið fékk sjálfstæði frá Suður-Afríku árið 1990 og flokkurinn hefur verið með tvo þriðju sæta á þingi landsins frá 1994. Flokkur Venaanis, Lýðræðishreyfingin, hefur ekki átt upp á pallborðið hjá kjósendunum vegna tengsla hans við stjórn hvíta minnihlutans í Suður-Afríku áður en Namibía fékk sjálfstæði. Hinir stjórnarandstöðuflokkarnir eru veikir og sundraðir vegna deilna milli þjóðernishópa.
Lögmaður Itula sendi yfirkjörstjórn bréf í vikunni þar sem greint var frá því að hann ætlaði að kæra niðurstöðuna.
Þar kemur enn fremur fram að Itula krefjist þess að fá öll gögn vegna kosninganna til að hægt sé að kæra framkvæmdina til Hæstaréttar landsins.