Forsetafrú Bandaríkjanna, Melania Trump, gagnrýndi opinberlega lagaprófessor sem notaði nafn 13 ára sonar þeirra hjóna til að gera grein fyrir máli sínu fyrir dómsmálanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gær.
Pamela Karlan, prófessor á sviði stjórnskipunarréttar, nefndi Barron Trump, son Donald og Melania Trump, sem dæmi um hvernig stjórnarskráin virki gagnvart aðli og völdum forseta. Hún segir að stjórnarskráin leggi bann við aðli svo á meðan forsetinn getur nefnt son sinn Barron getur hann ekki gert hann að baróni.
Þegar hún lét ummælin falla var hlegið í herberginu en Melania Trump kom því á framfæri að henni væri ekki skemmt.
Barn á rétt á einkalífi og á að halda fyrir utan stjórnmálin, skrifaði hún á Twitter.
Pamela Karlan þú ættir að skammast þín, segir Melania Trump meðal annars og vísar til þess að Karlan hafi beitt barni til að koma skoðunum sínum á framfæri.
A minor child deserves privacy and should be kept out of politics. Pamela Karlan, you should be ashamed of your very angry and obviously biased public pandering, and using a child to do it.
— Melania Trump (@FLOTUS) December 4, 2019
Trump birti færslu eiginkonu sinnar á Twitter en fylgjendur hans eru 67 milljónir talsins.
Á sama tíma og deilurnar stigmögnuðust á samfélagsmiðlum baðst Karlan afsökunar. „Ég vil biðja afsökunar á því sem ég sagði um son forsetans,“ sagði hún fyrir nefndinni. Þetta hafi verið rangt af henni. Karlan bætti síðan við að forsetinn myndi sjá sóma sinn í að biðja afsökunar á svo mörgum hlutum sem hann hefði gert.