Ali Milani talaði ekki stakt orð í ensku þegar hann kom til Bretlands frá Íran fimm ára að aldri. Nú 20 árum síðar er hann talinn helsta ógn forsætisráðherra landsins, Boris Johnson, í komandi þingkosningum.
Kosningakerfi Bretlands byggist upp á einmenningskjördæmum og fyrir vikið eru kjördæmin í landinu jafnmörg og þingsætin eða 650.
Milani er í framboði fyrir Verkamannaflokkinn í Uxbridge og South Ruislip þar sem Johnson er einnig í framboði. Ungum vonarstjörnum í stjórnmálum er oft gefinn möguleiki á að sanna sig í umdæmum sem ekki þykja miklar líkur á að þær fari með sigur af hólmi. En Milani ætlar sér svo sannarlega ekki að verða einn af þeim. Ólíklegt er samt að honum verði að ósk sinni.
Formaður Íhaldsflokksins, Boris Johnson, er með naumt forskot á Milani og hefur ekki verið svo mjótt á munum fyrir sitjandi forsætisráðherra í Bretlandi frá árinu 1924.
Milani, sem kynnir sig sem frambjóðanda af staðnum, hefur unnið þrotlaust að því að kynna sig fyrir kjósendum að undanförnu. Frambjóðendurnir þykja afar ólíkir. Milani, sem er bæði ungur og kemur frá Íran, er alinn upp af einstæðri móður og bjó í félagslegri íbúð í skugga Wembley-leikvangsins í norðvesturhluta London.
Johnson, sem er 30 árum eldri, er fyrrverandi borgarstjóri í London og utanríkisráðherra sem lagði stund á nám í þeim sögufræga skóla Eton. Hann nam síðan grísku og latínu í Oxford-háskóla.
Að sögn systur Johnson hefur hann allt frá barnæsku átt sér stóra drauma um að verða „konungur heimsins“.
Milani útskrifaðist úr stjórnmálafræði frá Brunel-háskólanum í Uxbridge. Hann er múslimi og fyrrverandi stjórnarmaður í landssamtökum námsmanna í Bretlandi.