Samið var um vopnahlé og að hersveitir hörfi frá átakasvæðum í austurhluta Úkraínu á leiðtogafundi Vladimir Pútín Rússlandsforseta og Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, í París í gær.
Greint var frá þessu í sameiginlegri yfirlýsingu eftir fundinn.
Emmanuel Macron Frakklandsforseti og Angela Merkel, kanslari Þýskalands, stóð fyrir fundinum.
Pútin sagði niðurstöðuna mikilvægt skref í átt að friðarátt í austurhluta Úkraínu en Zelensky sagðist vonsvikinn að hafa ekki fengið meira út úr fundinum.
Þúsundir hafa dáið og ein milljón manna hefur flúið heimili sín eftir að aðskilnaðarsinnar í austurhluta Úkraínu kröfðust sjálfstæðis árið 2014. Þeir náðu völdum í Donetsk og Lugansk skömmu eftir að Rússar innlimuðu Krímskaga.