Hefðbundnu taílensku nuddi (e. traditional thai massage) var bætt á heimsminjaskrá UNESCO í gær. Nuddið fellur í flokk óefnislegra menningarminja.
Nuddið rekur rætur sínar til Indlands en hefur verið stundað í Taílandi í um 2500 ár. Nuddið varð vinsælt þegar sérstakur nuddskóli opnaði árið 1960 en þar voru nuddarar frá öllum heimshornum þjálfaðir í þessari fornu list.
Fulltrúi Taílands á fundi Sameinuðu þjóðanna í Kólumbíu sagði að staða nuddsins á skrá UNESCO myndi gefa hefðbundnu taílensku nuddi mikið.
„Það hjálpar til við útbreiðslu og ástundun hefðbundins taílensks nudds, bæði í Taílandi og á alþjóðavísu.“
Þrír íslenskir staðir eru á heimsminjaskrá UNESCO. Þingvellir fengu stöðu á skránni árið 2004, Surtsey árið 2018 og Vatnajökulsþjóðgarður í júlí síðastliðnum.