Maður sem stöðvaði árásarmann á London-brú í lok nóvember segist vera miður sín yfir því að hafa ekki náð að bjarga tveimur sem létust í árásinni.
Árásin átti sér stað rétt fyrir klukkan 14, föstudaginn 29. nóvember á Fishmongers' Hall sem stendur norður af London brúnni. Árásármaðurinn var 28 ára gamall og dæmdur hryðjuverkamaður á reynslulausn. Hann var undir rafrænu eftirliti og hafði um sig ökklaband þegar hann framdi ódæðið.
Lögreglan skaut manninn til bana þegar hann gerði tilraun til að rísa á fætur eftir að Darryn Frost, 38 ára Lundúnabúi sem á ættir að rekja til Suður-Afríku, höfðu náð að yfirbuga hann. Kona og karl létust í árásinni, en þau unnu við að þjónusta fanga á reynslulausn. Þrír til viðbótar særðust, þar af eitt alvarlega.
Frost starfar í dómsmálaráðuneytinu og var einmitt á leið á fund fyrir afbrotamenn á reynslulausn þegar hann varð var við læti á brúnni. Frost tókst ásamt öðrum manni, sem var vopnaður slökkviliðstæki, að stöðva árásarmanninn sem var vopnaður tveimur hnífum. Lögreglan taldi hann íklæddan sprengjuvesti en það reyndist eftirlíking. Frost greip náhvalstönn af vegg Fishmongers' Hall og hljóp því næst í átt að árásarmanninum. Á þeim tímapunkti var annar borgari að reyna að yfirbuga árásarmanninn með stól.
Á myndskeiði má sjá þegar Frost nær árásarmanninum niður í jörðina. „Hann var með hnífa í báðum höndum. Hann sneri sér að mér og talaði við mig og gaf í skyn að hann væri með sprengjubelti um sig miðjan,“ segir Frost. Síðar kom í ljós að það reyndist vera eftirlíking.
Frost lýsir því hvernig hann hélt árásarmanninum niðri með því að halda fast um úlnliðina á honum til að koma í veg fyrir að hann gæti beitt hnífunum, skaðað fólk eða virkjað sprengjubeltið. Lögregla kom að Frost stuttu síðar og tók við árásarmanninum, sem var skotinn til bana skömmu síðar.
Frost hefur kynnt sér sögu fólksins sem lést í árásinni og segist sannfærður um að þau hafi staðið fyrir öllu því góða í heiminum. Hann segist vera miður sín yfir því að hafa ekki getað bjargað þeim. Frost segir upplifunina hafa verið hræðilega en ljósi punkturinn sé þó sá að almennir borgarar hafi sameinast gegn hryðjuverkum þennan dag.
„Ég vona að það sem ég gerði í þessum hræðilegu aðstæðum verði nýtt til góðs.“