Ari Behn, fyrrverandi eiginmaður Mörtu Lovísu Noregsprinsessu, fannst látinn í dag. Konungsfjölskyldan greindi frá því í yfirlýsingu í kvöld að hann hefði fallið fyrir eigin hendi. Behn var 47 ára.
Behn og Marta Lovísa voru gift í fjórtán ár en þau skildu árið 2016. Saman eignuðust þau börnin Maud Angelicu, fædd árið 2003, Leuh Isadoru, fædd 2005, og Emmu Talluluh, fædd 2008.
Í yfirlýsingu frá konungsfjölskyldunni kom fram að um mikla sorgarfregn væri að ræða og að Behn hefði verið mikilvægur hluti fjölskyldunnar í mörg ár.
„Við erum þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast honum. Við syrgjum með barnabörnum okkar sem hafa misst föður sinn og öðrum ættingjum hans. Við biðjum fyrir nánustu ættingjum hans,“ kom fram í yfirlýsingu frá Haraldi Noregskonungi.