Spænska lögreglan rannsakar nú lát þriggja breskra ríkisborgara sem drukknuðu í sundlaug á hóteli á Costa Del Sol í gær. 53 ára karlmaður og börn hans, 16 og níu ára létust.
Fólkið fannst meðvitundarlaust í sundlauginni og var úrskurðað látið, að því er fram kom í yfirlýsingu lögreglunnar á svæðinu.
Vitni að atvikinu, þar á meðal móðir barnanna sem létust, sögðu að faðirinn og sonurinn hefðu stokkið út í laugina þar sem þeir reyndu að aðstoða níu ára stúlkuna sem átti í erfiðleikum með að komast upp úr lauginni.
Spænskir fjölmiðlar greina frá því að orsök dauðsfallanna megi rekja til bilunar í fráveitukerfi laugarinnar.