Ari Behns skrifaði um dauða sinn

Fjölmargir hafa minnst Ari Behn í Noregi í gær og …
Fjölmargir hafa minnst Ari Behn í Noregi í gær og fyrrakvöld. AFP

Á öftustu síðu bókar Ari Behn, Inferno, sem var gefin út í fyrra skrifar Behn um dauða sinn. Textann er að finna við hlið myndar sem hann málaði og nefnist Gone, að því er segir í frétt norska ríkissjónvarpsins.

Útgefandinn Arve Juritzen segir að það hafi verið afar krefjandi að vinna með bókina vegna þeirra sorgar og vanlíðunar sem þar er fjallað um. Behn lýsir þar vandamálum sínum og veikindum.

Juritzen segir að hann hafi reynt að fá Behn til þess að breyta endanum á bókinni, gera hann aðeins bjartsýnni og jákvæðari, en Behn hafði tekið ákvörðun sem ekki var hægt að fá hann ofan af. „Hún ætti að ljúka á dauða og að kveðja,“ segir Arve Juritzen.

Ari Behn.
Ari Behn. AFP

NRK bendir þeim á sem þurfa hjálp að leita sér aðstoðar en hér á Íslandi er meðal annars hægt að hringja í hjálparsíma Rauða krossins, 1717, ef fólki líður illa.

Tilkynnt var um andlát Ari Behn að kvöldi jóladags og að hann hefði svipt sig lífi. Behn var bæði rithöfundur og myndlistarmaður en hann og Märtha Louise Noregsprinsessa voru gift í 14 ár og eiga þrjú börn saman. 

Forsíða bókarinnar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert