Tólf látnir og tíu alvarlega slasaðir

Frá vettvangi slyssins.
Frá vettvangi slyssins. AFP

Tólf eru látnir eftir flugslysið sem varð í Kasakstan í morgun, þar á meðal flugstjórinn. Átta þeirra létust á staðnum. 

53 til viðbótar slösuðust, þar af níu börn. Tíu af þeim fullorðnu sem voru í flugvélinni eru alvarlega slasaðir.

AFP

Alls voru 95 farþegar í vélinni og fimm manna áhöfn.

Flestir um borð voru frá Kasakstan en á meðal hinna slösuðu er fólk frá Kína, Kirgistan og Úkraínu.

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert