Ástralski sjóherinn hefur verið kallaður út svo hægt sé að koma hundruð manns frá strandbænum Mallacoota í Viktoríu-fylki sem hefur orðið gróðureldunum að bráð. Skip sjóhersins mun flytja um 800 manns frá bænum að því er BBC greinir frá. Um fjögur þúsund íbúar og ferðamenn hafa setið fastir í bænum síðan á mánudag vegna eldanna.
18 manns hafa látist í eldunum frá því í september og yfir 1.200 heimili hafa eyðilagst. Þá er 17 manns saknað sem stendur.
Umfangsmikil rýming hefur einnig verið fyrirskipuð í Nýja-Suður Wales en þar hefur fylkisstjórinn lýst yfir neyðarástandi. Veðurspáin fyrir helgina er hörmuleg upp á eldana að gera, en búist er við miklum hita og sterkum vindi.
Gróðureldarnir hafa einnig skaðleg áhrif á dýraríkið en vistfræðingar við háskólann í Sydney telja að hátt í hálfur milljarður spendýra, fugla og skriðdýra hafi drepist í eldunum frá því í september.
Líkt og greint var frá fyrr í dag þurfti Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, að stytta heimsókn sína til bæjarins Cobargo í Nýja Suður-Wales eftir að reiðir bæjarbúar sögðu honum til syndanna og gagnrýndu aðgerðaleysi hans og áströlsku ríkisstjórnarinnar yfir gróðureldum í landinu.
Myndskeið þar sem bæjarbúar létu hann heyra það má sjá hér að neðan: