Einn er látinn eftir stunguárás nærri París í Frakklandi auk árásarmannsins sem var skotinn til bana af lögreglu. Tveir aðrir eru slasaðir.
Maðurinn réðst á fjórar manneskjur að talið er í úthverfinu Villejuif áður en hann var skotinn til bana af lögreglu. Ekki er vitað hvað manninum gekk til, en enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni enn sem komið er.