Mark Esper, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, telur að dráp Bandaríkjanna á íranska hershöfðingjanum Qasem Soleimani í drónaárás í Bagdad, höfuðborg Íraks, verði Írönum víti til varnaðar.
„Ég held að aðgerðirnar gegn KH seint í desember og síðan aðgerðirnar gegn Soleimani, hafi orðið þeim víti til varnaðar,“ sagði Esper á blaðamannafundi og átti þar við Kataeb Hezbollah, írösku herdeildina sem er studd af Írönum.
„En við sjáum til. Tíminn mun leiða það í ljós,“ sagði hann.
Esper greindi frá þessu eftir að Íran skaut eldflaugum á tvær bækistöðvar í Írak í kvöld þar sem bandarískar hersveitir eru staðsettar, í hefndarskyni vegna drápsins á Soleimani.
Hvorki íraskur né bandarískur hermaður lést í árásunum og fregnir herma að Bandaríkin hafi vitað af árásunum fyrir fram.
Fyrr í kvöld sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti frá því í ræðu sem var sjónvarpað að bandaríska þjóðin ætti að vera þakklát vegna þess að enginn hermaður féll í árás Írana á Al-Asad-herstöðina.