Andrés prins, hertoginn af Jórvík, hefur verið afar ósamvinnuþýður við rannsókn á máli Jeffrey Epstein, að sögn Geoffrey Berman, saksóknara sem hefur yfirumsjón með rannsókninni.
Fjárfestirinn og barnaníðingurinn Jeffrey Epstein fyrirfór sér í hámarksöryggisfangelsi í New York á síðasta ári þar sem hann beið réttarhalda vegna kynferðisbrota, nauðgana og mansals. Epstein er meðal annars sakaður um að hafa flutt stúlkur allt niður í 12 ára til einkaeyjar sinnar í Karíbahafi allt frá árinu 2001.
Andrés og Epstein var vel til vina og ræddi hann tengslin í viðtali hjá BBC í nóvember þar sem frammistaða hans sætti mikilli gagnrýni. Andrés neitaði því í viðtalinu að hafa haft kynmök við unglingsstúlku á árum áður, en konan, Virginia Roberts, hefur sjálf sagt að Epstein hafi fyrirskipað henni að hafa mök við prinsinn er hún var 17 ára gömul.
Andrés hefur greint frá því að hann hafi ekki tekið eftir neinu grunsamlegu eða einkennilegri hegðun Epstein í heimsóknum til hans á árum áður.
„Andrés prins hefur hingað til ekki sýnt neinn samstarfsvilja,“ sagði Berman á blaðamannafundi fyrir framan heimili Epstein í New York í dag.
Í nóvember dró Andrés sig í hlé frá öllum opinberum skyldustörfum á vegum bresku konungsfjölskyldunnar um „fyrirsjáanlega framtíð“ vegna tengsla sinna við Epstein. Þá lýsti prinsinn því enn fremur yfir að hann myndi aðstoða lögreglu við rannsókn sína „væri þess krafist“.
Það hefur hins vegar ekki verið raunin og lögmaður fimm kvenna, sem fullyrða að þær séu fórnarlömb mansals á vegum Epstein, segir að verið sé að undirbúa stefnur í málinu til að fá Andrés prins til að bera vitni.
Berman var spurður um gang rannsóknarinnar og sagði hann vera til skoðunar hvort Epstein hafi átt mögulega samverkamenn sem sigtuðu út konur sem Epstein nálgaðist síðar í kynferðislegum tilgangi.
„Jeffrey Epstein hefði ekki tekist ætlunarverk sitt án aðstoðar annarra og ég get fullvissað ykkur um að rannsókninni miðar áfram,“ sagði Berman.