Bandarísk yfirvöld vinna að þróun bóluefnis gegn kórónaveirunni. Þau hvetja kínversk stjórnvöld sömuleiðis til að sýna meiri samstarfsvilja í baráttunni gegn veirunni, sem vísindamenn óttast að geri orðið að heimsfaraldri.
Dauðsföllum af völdum kórónaveirunnar fjölgar hratt og er nú vitað um að 106 eru látnir. Á einum degi hefur fjöldi tilfella nýrra smita nánast tvöfaldast.
Bandarísk yfirvöld ætla að koma á fót eigin teymi sem mun rannsaka frumgögn sem til eru um veiruna. „Við höfum nú þegar hafist handa við að þróa bóluefni gegn veirunni,“ segir Anthony Fauci, forstjóri bandarísku heilbrigðisstofnunarinnar (NIH). Talið er að ferlið muni alls taka um sex mánuði áður en bóluefnið kemst af tilraunastigi.
Alex Azar, heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, segir Bandaríkin hafa boðið kínverskum yfirvöld aðstoð í þrígang í baráttunni gegn kórónaveirunni, en ekki fengið nein viðbrögð. Fyrsta boð um aðstoð hafi borist 6. janúar.
„Við hvetjum Kína til að bregðast við, samstarfsvilji og gagnsæi eru lykilþættir í baráttunni gegn veirunni,“ segir Azar.
Xi Jinping, forseti Kína, sagði fyrr í dag að kínversk yfirvöld hafi alltaf lagt áherslu á gagnsæi og ábyrga afstöðu við að upplýsa aðila heima fyrir og erlend lönd á skjótan hátt um faraldurinn, en ummæli Azar gefa annað til kynna.