Gefa út leiðbeiningar vegna kórónaveirunnar

Landspítalinn vinnur nú að því að þýða leiðbeiningar fyrir almenning …
Landspítalinn vinnur nú að því að þýða leiðbeiningar fyrir almenning frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) vegna útbreiðslu kórónaveirunnar. mbl.is/Ómar Óskarsson

Landspítalinn vinnur nú að því að þýða leiðbeiningar fyrir almenning frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) vegna útbreiðslu kórónaveirunnar. 

Um er að ræða hefðbundnar leiðbeiningar fyrir almenning þegar kemur að því að forðast smit og fækka smitleiðum gagnvart fjölbreyttum veikindum. 

Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum hagar kórónaveiran, Novel (2019-nCoV), sér sumpart eins og inflúensa, einkennin eru svipuð og smitleiðir eru áþekkar. Handhreinsun, hreinlæti kringum öndunarvegi og örugg meðhöndlun fæðu eru lykilatriði í þessum efnum.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur látið hanna nokkur grafísk veggspjöld vegna kórónaveirunnar …
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur látið hanna nokkur grafísk veggspjöld vegna kórónaveirunnar og vinnur Landspítali nú að því þýða þau og vippa yfir á ástkæra ylhýra og mun birta strax í kjölfarið á vefsvæðum og samfélagsmiðlum sínum. Grafík/WHO

Veggspjöld frá WHO verða þýdd sem fyrst og dreift á vefsíðu og samfélagsmiðlum spítalans. Leiðbeiningarnar eru eftirfarandi: 

  • Hreinsið hendur oft og reglulega og notið heitt vatn og sápu ásamt handspritti, ef kostur er.
  • Hóstið og hnerrið í kreppta lófa og olnboga eða pappír (handþurrkur eða klósettpappír) og hendið pappírnum strax að notkun lokinni.
  • Munið að snertismit berst auðveldlega um sameiginlega snertifleti á almannafæri, til dæmis greiðsluposa, handföng, handrið, hurðarhúna, lyftuhnappa og snertiskjái.
  • Reynið að komast hjá því að snerta eigin augu, nef og munn með óhreinum fingrum þar sem snertismit berst auðveldlega gegnum slímhúð.
  • Forðist náið samneyti við fólk með hita eða hósta og augljós flensueinkenni.
  • Ef þið eruð með hita, hósta og örðugleika við öndun leitið þá læknishjálpar þegar í stað og hafið meðferðis ferðasögu ykkar.
  • Munið að hringja á viðkomandi heilbrigðisstofnun eða í símanúmerið 1700 (Ísland) áður en þið mætið á svæðið svo hægt sé að gera ráðstafanir til að forðast smit.
  • Forðist alla óvarða snertingu við villt dýr og húsdýr og yfirborð á mörkuðum á þeim landsvæðum sem eru núna að fást við kórónaveiruna Novel. Þetta á einkum við Kína í augnablikinu (30. janúar) þar sem Novel hefur náð mestri útbreiðslu.
  • Á ferðalögum erlendis ættu Íslendingar að forðast hráar eða lítið eldaðar dýraafurðir. Einkum þarf að gæta varúðar kringum hrátt kjöt, mjólk og innyfli dýra. Mikilvægt er að gæta ýtrustu varúðar við eldamennsku. Þetta á sömuleiðis aðallega við Kína.
Dauðsföll­um af völd­um kór­óna­veirunn­ar held­ur áfram að fjölga og hafa …
Dauðsföll­um af völd­um kór­óna­veirunn­ar held­ur áfram að fjölga og hafa kín­versk yf­ir­völd staðfest að 170 eru látn­ir og 7.783 hafa smit­ast. AFP



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert