Indverskur dómstóll hefur fyrirskipað að aftöku fjögurra manna sem dæmdir voru fyrir hópnauðgun í Delí árið 2012 sem fram átti að fara á morgun verði frestað um óákveðinn tíma. Hengja átti fjórmenningana.
Jyoti Singh, 23 ára nema í sjúkraþjálfun, var nauðgað af fimm mönnum og unglingspilt eftir að hún þáði far með þeim þegar hún var á heimleið eftir bíó með vini sínum. Hún lést þrettán dögum síðar af völdum áverka sem hún hlaut við árásina. Árásin vakti gríðarlega reiði um allan heim og ekki síst á Indlandi, þar sem fólk tók þátt í mótmælum vikum saman.
Til stóð að hengja þá alla á sama tíma, í fyrramálið klukkan 6. Enginn hefur verið tekinn af lífi á Indlandi frá því árið 2015. Fimmti árásarmaðurinn, sem talið er að hafi verið höfuðpaurinn í nauðguninni, fannst látinn í klefa sínum og er talið að hann hafi hengt sig. 17 ára piltur sem tók þátt í ódæðinu dvaldi í unglingafangelsi í þrjú ár fyrir aðild að árásinni.
Frestunin skýrist af því að einn mannanna hefur enn möguleika á að áfrýja dómnum til æðsta dómsstigs. Einn þeirra hefur beðið forseta landsins um að veita sér miskunn en slíkt er afar óalgengt í indversku réttarfari.