Alls hafa 1.519 látist af völdum kórónuveirunnar COVID-19 sem á upptök sín í Wuhan í Hubei-héraði í Kína. Yfirvöld í Hubei greindu í kvöld frá 140 dauðsföllum til viðbótar af völdum veirunnar.
Yfir 2.400 ný tilfelli hafa verið staðfest en það eru helmingi færri tilfelli en staðfest voru í gær.
Samanlagt hafa rúmlega 66 þúsund smitast af veirunni. Borgaryfirvöld í Peking tilkynntu fyrr í dag að íbúar borgarinnar sem snúa heim úr ferðalögum verði að fara í 14 daga sóttkví.