Heilbrigðisyfirvöld í Washington-ríki í Bandaríkjunum hafa greint frá því að einstaklingur hafi látist þar, sem smitaður var af kórónuveirunni. Er það fyrsti einstaklingurinn sem deyr af völdum veirunnar þar í landi.
Greint var frá þessu nú á sjöunda tímanum að íslenskum tíma, en frekari upplýsingar verða gefnar á fréttamannafundi klukkan eitt að staðartíma, eða klukkan níu í kvöld að íslenskum tíma.
Heildarfjöldi smittilvika í Bandaríkjunum er núna kominn upp í 19.