ESB gagnrýnir Bandaríkin

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. AFP

Leiðtogar Evrópusambandsins gagnrýndu í morgun bandarísk stjórnvöld fyrir að setja á einhliða ferðabann á farþega frá löndum á Schengen-svæðinu án nokkur samráðs.

„Kórónuveiran er alheimskrísa sem er ekki bundin við tilteknar álfur og til að takast á við hana þarf samvinnu en ekki einhliða aðgerðir,“ sögðu Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og Charles Michel,  forseti leiðtogaráðs sambandsins, í skriflegri yfirlýsingu.

„Evrópusambandið hefur gripið til víðtækra aðgerða til að takmarka útbreiðslu veirunnar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert