Slæmt ástand vegna kórónuveirunnar á Ítalíu hefur ekki komið í veg fyrir að heimamenn bresti í söng til að létta andann.
Ítalir mega aðeins ferðast um götur vegna vinnu, af heilbrigðisástæðum eða vegna neyðarúrræða.
Í þessu skemmtilega myndskeiði má heyra heimamenn syngja þjóðsönginn og óperusöngkonu hefja upp raust sína.