Sveitarstjórnarkosningar fara fram í Frakklandi í dag og voru kjörstaðir opnaðir klukkan átta að staðartíma í morgun, þrátt fyrir víðtækar lokanir sem tóku gildi á miðnætti.
Öllum almenningssvæðum sem ekki teljast til nauðsynlegrar þjónustu hefur verið lokað, til að mynda veitingastöðum, kaffihúsum, kvikmyndahúsum, næturklúbbum sem og fyrirtækjum sem ekki eru talin „bráðnauðsynleg“.
41,7 milljónir kjósenda eru á kjörskrá og kjörstaðir verða opnir ýmist til klukkan 17, 18 eða 19 í kvöld. Óvíst er hvernig kjörsóknin verður en seinni umferð sveitarstjórnarkosninganna er fyrirhuguð 22. mars.