Margrét Þórhildur Danadrottning ætlar að ávarpa dönsku þjóðina í sjónvarpi í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá konungshöllinni.
Þar kemur fram að drottningin muni ávarpa þjóðina vegna þess alvarlega ástands sem uppi er í þjóðfélaginu vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.
Ávarpi drottningarinnar verður streymt á DR og TV.