Borgarstjóri New York borgar, Bill de Blasio, segir borgina í miðju kórónuveirufaraldursins og að hvergi annars staðar sé þörf á meiri aðstoð. „Hvergi annars staðar er þjáningin eins mikil,“ segir borgarstjórinn í færslu á Twitter.
Hann segir aðgerðapakka sem öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær sem bjarga á bandarísku efnahagslífi og milljónum Bandaríkjamanna sem hafa orðið illilega fyrir barðinu á kórónuveirunni hvergi nærri duga. Aðgerðapakkinn hljóðar upp á tvær billjónir (milljón milljóna) Bandaríkjadala.
„Það er ekki það sem við þurfum til að berjast gegn faraldrinum í stærstu borg landsins,“ segir de Blasio í færslu á Twitter. Hann segir sjúkrahús vera við það að verða uppiskroppa með aðföng, fyrirtæki neyðist til að loka og að útlit sé fyrir fordæmalaust atvinnuleysi í borginni.
NYC is the epicenter of this crisis. No place is hurting more. No place needs help more urgently. The direct aid to localities in the stimulus bill coming out of Mitch McConnell’s Senate is nowhere close to what we need to fight this epidemic in the nation’s largest city.
— Mayor Bill de Blasio (@NYCMayor) March 25, 2020
Um 15.000 smit hafa verið staðfest í borginni og nærri 200 dauðsföll. Nokkrir dagar eru síðan veiran náði útbreiðslu um öll Bandaríkin og eru staðfest smit nú yfir 60 þúsund og dauðsföllin 827 og hefur þeim fjölgað um rúmlega 200 síðastliðinn sólarhring.
Aðeins í Kína og á Ítalíu hafa fleiri smit greinst. Spálíkan sem kynnt var á Bandaríkjaþingi fyrr í þessum mánuði gerir ráð fyrir að á bilinu 70 til 150 milljónir geti smitast af kórónuveirunni í Bandaríkjunum.