Hæstiréttur Ástralíu sýknaði í dag George Pell, fyrrverandi fjármálastjóra Páfagarðs og kardínála, af ákæru um barnaníð. Hann var síðasta vor dæmdur í sex ára fangelsi fyrir barnaníð en áfrýjaði dómnum.
Pell var dæmdur fyrir að hafa beitt tvo drengi kynferðislegu ofbeldi í Ástralíu. Aldrei áður hefur jafn hátt settur einstaklingur innan kaþólsku kirkjunnar verið dæmdur fyrir barnaníð.
Pell beitti 13 ára gamla kórdrengi kynferðisofbeldi í dómkirkju í Melbourne árið 1996, samkvæmt niðurstöðu tveggja undirdómstóla í Ástralíu.
Hæstiréttur sýknaði Pell hins vegar og var honum ekið í klaustur í Melbourne eftir að niðurstaðan varð ljós.