917 látnir í Bretlandi á sólarhring

Frá London.
Frá London. AFP

Alls lét­ust 917 manns vegna Covid-19 á bresk­um sjúkra­hús­um síðasta sól­ar­hring­inn. Alls hafa tæplega tíu þúsund lát­ist í Bretlandi af völd­um Covid-19-sjúk­dóms­ins.

Staðfest smit í Bretlandi eru 78.991, að því er fram kemur í frétt AFP.

Í gær létust 980 manns á breskum sjúkrahúsum og voru það flest dauðsföll af völd­um kór­ónu­veirunn­ar á ein­um sól­ar­hring þar í landi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert