Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, hefur verið harðlega gagnrýndur af læknum eftir að hann lagði til að rannsakað yrði hvort hægt væri að dæla sótthreinsivökva í fólk sem meðferð við kórónuveirunni. Læknar vara við þessum hugmyndum og segja að þetta gæti reynst fólki banvænt.
CNN fréttastofan hefur birt frétt þar sem staðreyndavakt miðilsins sýnir fram á að það sem forsetinn sagði á fundinum stenst ekki.
Trump lagði einnig til hvort ekki væri hægt að beina útfjólubláum geislum á líkama sjúklinga með COVID-19. Sú hugmynd hans var strax slegin út af borðinu af lækni á fundinum með blaðamönnum í gær.
Stuttu áður hafði embættismaður sagt að það væri þekkt að sólarljós og sótthreinsiefni dræpu sýkinguna. En jafnvel opinberar heilbrigðisstofnanir í Bandaríkjunum hafa varað við notkun bleikiefna í lækningaskyni. Þetta kemur fram á vef BBC.
„Það hefur verið orðrómur um — þið vitið mjög góður orðrómur — um að ef þú ferð út í sólina eða hita og það hefur áhrif á aðrar veirur,“ sagði Trump áður en hann bað dr. Deborah Brix um að ræða við lækna og kanna hvort hægt sé að nota ljós og hita til að lækna.
Á fundi með blaðamönnum í Hvíta húsinu í gær fjallaði embættismaður um nýja rannsókn á vegum bandarísku ríkisstjórnarinnar þar sem fram kemur að kórónuveiran virðist veikjast fyrr ef henni er mætt með sólarljósi og hita. Rannsóknin sýndi einnig að bleikiefni gæti drepið veiruna í munnvatni eða úða frá öndunarfærum innan fimm mínútna og própanól gæti jafnvel drepið veiruna enn hraðar.
Það var William Bryan, starfandi yfirmaður vísinda og tæknideildar heimavarnaráðuneytisins, sem kynnti þetta á blaðamannafundinum. Trump segir að taka þurfi rannsókninni með fyrirvara en rétt væri að rannsaka þetta frekar.