Leiðtogar ESB-ríkja samþykktu í gærkvöldi að veita milljörðum í efnahagsaðstoð handa ríkjum sambandsins sem eru illa leikin vegna kórónuveirufaraldursins en hálfur milljarður evra verður tiltækur frá 1. júní. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir framlagið nema alls þúsund milljörðum evra.
Töluverður ágreiningur hefur verið um fjármögnun neyðaraðstoðarinnar; milli ríkja í norðanverðri og sunnanverðri álfunni.
Ítalir hafa verið í forsvari ríkja sem vilja að þau auðugri, líkt og Þýskaland, leggi meira í púkkið. Guiseppe Conte, forsætisráðherra Ítalíu, sagði í gærkvöldi að mikilvægum áfanga væri náð.
Emmanuel Macron Frakklandsforseti sagði enn ekki ljóst nákvæmlega með hvaða hætti aðstoðin yrði; hvort það yrði í formi lána eða styrkja. Hann segir mikilvægt að styrkja ríki, ekki lána þeim.
Fyrr í apríl komust leiðtogar ESB að samkomulagi um 500 milljarða evra aðgerðapakka.
Yfir 100.000 þúsund manns hafa látist af völdum kórónuveirunnar í Evrópu.