Yfirvöld í Sádi-Arabíu hyggjast hætta að dæma fólk til dauða fyrir glæpi sem það framdi á barnsaldri. Frá þessu greinir mannréttindaráð landsins og er breytingin sögð liður í að draga úr gagnrýni á mannréttindamál í Sádi-Arabíu.
Alls voru 184 manneskjur teknar af lífi af yfirvöldum í Sádi-Arabíu í fyrra og hafa aldrei verið jafn margar á einu ári samkvæmt skýrslu Amnesty International sem kom út fyrr í þessum mánuði. Á heimsvísu fækkaði aftökum árið 2019 frá fyrra ári. Aðeins er vitað um tuttugu lönd í heiminum sem framkvæma aftökur.
Af þeim 184 sem tekin voru af lífi í Sádi-Arabíu í fyrra voru sex konur og og rúmlega helmingur allra var erlendis frá. Að minnsta kosti einn var sakaður um lögbrot undir lögaldri. Til samanburðar var fjöldi aftaka 148 árið 2018.
Í stað dauðarefsingar fyrir glæpi þar sem hinn brotlegi er undir lögaldri verður kveðinn upp konunglegur úrskurður í slíkum málum þar sem hámarksrefsing er tíu ár í ungmennafangelsi.
Óljóst er hins vegar hvenær lagabreytingin öðlast gildi.