Rúmlega 4,5 milljónir kórónuveirusmita hafa verið staðfest í heiminum. Alls hafa 4.516.360 smitast í 195 ríkjum frá því að faraldurinn braust út í Kína í lok síðasta árs. Af þeim hafa 1.622.354 náð fullum bata.
306.051 hafa látið lífið af völdum veirunnar, flestir í Bandaríkjunum eða rúmlega 88 þúsund. Bretland kemur þar á eftir með rúmlega 33 þúsund dauðsföll.
Þar á eftir kemur Ítalía þar sem rúmlega 31 þúsund hefur látið lífið. Í Evrópu hafa samanlagt 164.145 látist af völdum COVID-19.
Hér má sjá tölfræði John Hopkins-háskólans yfir útbreiðslu kórónuveirufaraldursins.