Sonur sádiarabíska blaðamannsins Jamal Khashoggi segir fjölskylduna fyrirgefa morðingjum föður síns. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Salah Khashoggi birtir á Twitter.
Khashoggi var myrtur á ræðismannsskrifstofu Sádi-Arabíu í Istanbúl í Tyrklandi af sádiarabískum útsendurum í október 2018. Lík hans hefur enn ekki fundist.
Tyrkneskir saksóknarar hafa ákært 20 einstaklinga, þar á meðal tvo nána aðstoðarmenn Mohammed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu, fyrir aðild að morðinu á blaðamanninum Jamal Khashoggi sem myrtur var árið 2018. Fimm höfðu áður verið dæmdir til dauða fyrir morðið á Khashoggi, en krónprinsinn tók fulla ábyrgð á morðinu í sjónvarpsviðtali. Hann þvertók þó fyrir að hafa skipulagt morðið.
Í yfirlýsingunni vísar Salah í Allah: „Ef manneskja fyrirgefur og sættir sig við orðinn hlut verður sá hinn sami verðlaunaður af Allah. Þess vegna fyrirgefum við, synir Khashoggis, þeim sem myrtu föður okkar.“
Hatice Cengiz, unnusta Khashoggis, tekur í annan streng og segir að enginn hafi rétt á að fyrirgefa morðingjum. „Ég og aðrir munum ekki hætta fyrr en réttlæti verður náð,“ segir Cengiz m.a. á Twitter.
Salah hefur áður sagt að hann beri traust til dómskerfisins í Sádi-Arabíu. Washington Post fjallaði um börn Khashoggis í fyrra þar sem fram kom að þau hafi þegið gjafir frá stjórnvöldum fyrir margar milljónir, meðal annars hús. Salah hefur þvertekið fyrir að hafa þegið einhvers konar sáttagreiðslu frá stjórnvöldum í Sádi-Arabíu.