Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði í morgun að setja strangar reglur eða jafnvel láta loka samfélagsmiðlum eftir að Twitter merkti tvö tíst hans sem misvísandi. Sagði hann að skoðun repúblikana væri að samfélagsmiðlar væru að reyna að þagga niður í íhaldssömum röddum.
Sagði Trump jafnframt að komið hefði í ljós árið 2016, þegar hann var kjörinn forseti, hvað samfélagsmiðlar hefðu reynt að gera, en mistekist. Segir hann nú að ekki megi láta miðlana gera það aftur nú.
Í tístum forsetans sem Twitter hefur merkt sérstaklega sem misvísandi hélt Trump því fram, án þess að færa fyrir því nokkur rök eða sannanir, að kjörseðlar sem eru sendir heim til fólks leiði til kosningasvika og „spilltra kosninga“.
Undir tístunum setti forsetinn tengla þar sem stóð „Sækið staðreyndir um kjörseðla sem eru sendir í pósti“. Þar er bent á að CNN, Washington Post og fleiri fréttamiðlar hafi vitnað í sérfræðinga sem segja að kjörseðlar í pósti tengist afar sjaldan kosningasvikum.
Segir hann aftur í dag að slíkir kjörseðlar myndu opna algjörlega á kosningasvindl og að sá sem muni svindla mest muni vinna.
....happen again. Just like we can’t let large scale Mail-In Ballots take root in our Country. It would be a free for all on cheating, forgery and the theft of Ballots. Whoever cheated the most would win. Likewise, Social Media. Clean up your act, NOW!!!!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) May 27, 2020