Kórónuveiran „er ekki horfin“ og við þurfum að búa okkur undir frekari útbreiðslu. Þetta kom fram í máli eins helsta sérfræðings Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í faraldursfræðum í viðtali við BBC.
Sérfræðingurinn, David Nabarro, sagði að nú þegar slakað hefur verið á takmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins víða í Evrópu þurfi fólk að halda fjarlægðarmörk eins mikið og mögulegt er.
Nabarro sagði áfram gríðarlega mikilvægt fyrir alla að fara í einangrun um leið og það fyndi fyrir einkennum veirunnar.