Bandaríski leikstjórinn Spike Lee segir Bandaríkjamenn vera reiða vegna þess að þeir „lifa hvern dag í þessum heimi þar sem kerfið er ekki hannað til þess að þú getir sigrað“.
Hann segir ástæðurnar fyrir mótmælaöldunni í Bandaríkjunum ekki aðeins vera dauða George Floyd og annarra svartra Bandaríkjamanna, heldur einnig víðtækara misrétti og óréttlæti.
„Það er ekki eins og þú fæðist reiður,“ segir Lee í samtali við BBC. Viðbrögð Donalds Trump Bandaríkjaforseta sýni að „hann er glæpamaður, hann er að reyna að vera einræðisherra“.
Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, ávarpaði bandarísku þjóðina í Rósagarði Hvíta hússins í gærkvöldi og greindi frá því að hann ætlaði að virkja bæði herlið og borgara í landinu til þess að koma böndum á óeirðirnar sem fylgt hafa mótmælunum í kjölfar dauða George Floyds.
Þá lét Trump lögreglu ryðja almenningsgarð þar sem friðsöm mótmæli fóru fram svo að hann gæti tekið mynd af sér með biblíu í hendi fyrir framan St. John-kirkjuna í Washington.
„Ég horfði á þetta í gærkvöldi með fjölskyldunni minni og við öskruðum öll af vantrú yfir því að þetta var sviðsett,“ segir Lee. „Þessi valdbeiting — táragas, að berja saklaust, friðsamlegt fólk svo hægt sé að ryðja götuna svo þú getir labbað að kirkjunni. Það var fáránlegt. Biblían leit ekki eðlilega út í hendi hans, og hann leit ekki eðlilega út haldandi á henni. Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt áður á ævinni, sérstaklega hjá þjóðarleiðtoga.“