Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur lýst yfir neyðarstigi í landinu vegna olíuslyss í Norilsk, sem er staðsett innan norðurheimskautsbaugsins, þar sem 20.000 tonn af dísilolíu enduðu ofan í á eftir að olíutankur gaf sig.
Samkvæmt frétt Guardian er um að ræða slys hjá verksmiðju á vegum Nornickel, sem heldur úti fjölda verksmiðja á svæðinu og veldur því að borgin Norilsk er einn mengaðasti staður heims.
Á fjarfundi vegna slyssins ávítaði Pútín forstjóra Nornickel fyrir að hafa ekki tilkynnt mengunarslysið, en yfirvöldum á svæðinu var ekki gert viðvart fyrr en tveimur dögum eftir að olíutankurinn gaf sig. „Eigum við að komast að því að það sé neyðarástand í gegnum samfélagsmiðla? Er ekki í lagi með ykkur þarna?“ spurði Pútín forstjórann, en ríkisstjóri í Krasnoyarsk þar sem borgin Norilsk er staðsett sagðist ekki hafa vitað af alvarleika ástandsins fyrr en hann sá fjallað um það á samfélagsmiðlum.
Pútín ákvað að lýsa yfir neyðarástandi í Rússlandi til þess að hægt væri að grípa til úrræða til þess að hreinsa olíuna úr náttúrunni.
Rannsóknarnefnd Rússlands, sem rannsakar alvarlega glæpi, hefur hafið þrjár mismunandi rannsóknir á tildrögum og afleiðingum slyssins.