Dauði Rayshard Brooks, svarts Bandaríkjamanns sem skotinn var af lögreglumanni í Atlanta í Georgíu-ríki á föstudag, er manndráp. Þetta er niðurstaða réttarmeinafræðings sem skilaði skýrslu í gær.
Í krufningarskýrslunni segir að Brooks hafi hlotið tvö skotsár í bakið sem ollu blóðmissi og skemmdum á líffærum. Saksóknari í Fulton-sýslu í Atlanta segir í samtali við CNN að þrátt fyrir úrskurð réttarmeinafræðings gæti Rolfe verið ákærður fyrir morð.
Brooks, sem var 27 ára, lést þegar hann flúði tvo lögreglumenn sem hugðust handtaka hann á bílastæði við Wendy‘s-veitingastaðinn á föstudagskvöld. Erika Shields, lögreglustjóri í Atlanta, hefur stigið til hliðar eftir atvikið og ný bylgja mótmæla gegn rasisma og lögregluofbeldi er hafin í Atlanta vegna málsins.
Fleiri þúsund íbúar Atlanta fylltu götur borgarinnar um helgina og kölluðu eftir aðgerðum í kjölfar dauða Brooks. Talið er að um 15 þúsund manns hafi komið saman og mótmælt í gær. Garrett Rolfe, lögreglumanninum sem skaut Brooks, hefur verið sagt upp störfum og félagi hans hefur verið færður til í starfi á meðan atvikið er rannsakað.
Lögregla var kölluð til á bílastæðið vegna Brooks sem var sofandi í bíl sínum sem er sagður hafa hindrað umferð á bílastæðinu fyrir utan staðinn. Þegar þeir komu á vettvang reyndist Brooks vera undir áhrifum áfengis og tilraun var gerð til að handtaka hann. Brooks streittist á móti og í átökunum við lögreglumennina náði hann rafbyssu af öðrum þeirra og hóf að hlaupa af vettvangi.
Lögreglumennirnir eltu Brooks sem er sagður hafa snúið sér við á hlaupum og beint rafbyssunni að lögreglumönnunum sem náðu að skjóta hann með rafbyssu. Óljóst er hvað gerðist næst en á myndbandsupptöku, sem ekki var beint að átökunum, heyrðust skot stuttu síðar. Brooks var færður á sjúkrahús þar sem hann fór í aðgerð en lést af sárum sínum.
„Ég vil að þeir fari í fangelsi,“ segir Tomika Miller, eiginkona Brooks, í samtali við CBS-fréttastöðina. „Ef eiginmaður minn hefði skotið þá væri hann í fangelsi. Hann fengi lífstíðardóm. Þeir verða að fara í fangelsi.“
Atvikið er það 48. á þessu ári sem yfirvöld í Georgíu-ríki rannsaka sérstaklega þar sem lögregla beitir skotvopnum í aðgerðum sínum. Í 15 þessara tilfella er um dauðsfall að ræða. Búist er við frekari mótmælum í Atlanta í dag vegna dauða Brooks.