Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur rekið saksóknara í New York eftir að hann neitaði að láta af störfum.
Saksóknarinn Geoffrey Berman, sem hefur farið fyrir saksókn gegn fjölda samstarfsmanna Donalds Trump Bandaríkjaforseta síðan hann tók við stöðu saksóknara í New York árið 2018, segist hafa komist að því í fréttatilkynningu dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna að hann væri að stíga til hliðar. Hann sagði ekkert til í því og sagðist ekki ætla að segja af sér fyrr en annar verði tilnefndur í starfið af forseta og samþykktur af þingmönnum öldungadeildarinnar. Nú hefur hann verið rekinn, að því er fram kemur í tilkynningu William Barr dómsmálaráðherra.
„Þar sem þú hefur lýst því yfir að þú ætlir ekki að víkja úr starfi hef ég beðið forsetann að sjá til þess að þú gerir það,“ segir Barr m.a. í tilkynningunni.
Berman hefur meðal annars rannsakað umfangsmikil mál fyrrverandi samstarfsmanna forsetans, til að mynda Michael Cohen.