Kórónuveirusmit eru orðin 10 milljónir á heimsvísu samkvæmt talningu Johns Hopkins-háskóla og Reuters-fréttastofunnar, sem segir daginn marka tímamót í útbreiðslu kórónuveirunnar sem valdið hefur dauða hátt í hálfrar milljónar manna.
Fjöldi smitaðra er um tvöfalt fleiri en þeir sem veikjast alvarlega af inflúensu árlega, samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni.
Kórónuveirufaraldurinn er enn á mikilli uppleið, ekki síst í Bandaríkjunum þar sem afléttingu takmarkana hefur víða verið frestað vegna mikils fjölda nýsmita. Þá er staðan t.a.m. virkilega slæm í Brasilíu og á Indlandi.