Útgönguspár forsetakosninga í Póllandi benda til þess að Andrzej Duda, sitjandi forseti Póllands, og Rafal Trzakowski, borgarstjóri Varsjár, muni eigast við í annarri umferð kosninganna sem fram fara í næsta mánuði.
Hreinan meirihluta þarf til að ná kjöri og ef marka má útgönguspár er Duda með 41,8% greiddra atkvæða en Trzakowski 30,4%.
Duda er frambjóðandi stjórnarflokksins íhaldssama Laga og réttlætis og tapi hann kosningunum má búast við talsverðum breytingum á stjórnarháttum í Póllandi.Trzaskowski er frambjóðandi Borgaraflokksins og mun frjálslyndari og hefur heitið því, verði hann kjörinn forseti, að bæta samband Póllands og ráðamanna í Brussel.
„Ég verð frambjóðandi breytinga!“ sagði Trzaskowski á kosningavöku sinni í Varsjá í kvöld.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, er í hópi borgarstjóra í Evrópu sem hafa lýst yfir stuðningi við framboð Trzakowskis.
Níu buðu sig fram gegn Duda, auk Trzakowskis. Fjölmiðlamaðurinn Szymon Holownia er með 13,3% greiddra atkvæða á eftir borgarstjóranum og sitjandi forseta. Kannanir benda til að fylgi hans muni færast yfir til Trzakowskis og því gæti stefnt í spennandi aðra umferð forsetakosninganna, sem fram fer 12. júlí.
Upphaflega átti að ganga til kosninga í maí en þeim var frestað sökum útbreiðslu kórónuveirunnar í Póllandi. Kjörsókn var með besta móti í kosningunum í dag, um 62,9% samkvæmt útgönguspám, sem er meira en í fyrri kosningum.