30.000 „nafnlausir einstaklingar“ eru grunaðir um að tengjast umfangsmiklum barnaníðshring sem lögregluyfirvöld í Þýskalandi eru með til rannsóknar. Rannsóknin hófst í október þegar meintur barnaníðingur var handtekinn í borginni Bergisch Gladbach í Þýskalandi en þá grunaði engan hversu umfangsmikill hringurinn væri.
„Ég bjóst ekki við, ekki einu sinni smávegis, hversu gríðarlega mikið barnaníð er til á netinu. Það sem rannsakendur hafa afhjúpað er mjög óhugnanlegt. Við verðum að gangast við því að barnaníð á netinu er miklu stærra vandamál en við héldum áður,“ sagði Peter Beisenbach, dómsmálaráðherra sambandsríkisins Norðurrínar-Vestfalíu, við fjölmiðla fyrr í dag.
Netglæpadeild lögreglunnar í Norðurrín-Vestfalíu rannsakar nú 30.000 „nafnlausa einstaklinga“ sem tengjast mögulega hringnum sem var uppgötvaður eftir handtökuna í Bergisch Gladbach. Þessir 30.000 nota dulnefni á vefnum og því vita yfirvöld ekki hverjir þessir einstaklingar eru. „Við ætlum að draga gerendur og þá sem gera þessa starfsemi mögulega út úr leyndarhjúpi netsins,“ lofaði Beisenbach.
Síðan í október hafa rannsakendur náð að bera kennsl á 70 grunaða einstaklinga og einn af þeim hefur þegar verið dæmdur – 27 ára hermaður sem fékk 10 ára fangelsisdóm og að honum loknum verður hann vistaður á geðdeild ótímabundið.
Nokkrir umfangsmiklir barnaníðshringir hafa verið afhjúpaðir í Þýskalandi síðustu 18 mánuði og hefur það reynst mörgum Þjóðverjum áfall hversu algeng þessi glæpastarfsemi er. Fyrr í þessum mánuði voru 11 handteknir grunaðir um að beita börn kynferðislegu ofbeldi og taka það upp á myndband.
Lagt var hald á myndir og myndskeið sem fundust í kjallara hjá 27 ára gömlum manni. Rannsakendur hafa borið kennsl á að minnsta kosti þrjú fórnarlömb – þau eru fimm ára, 10 ára og 12 ára gömul.
Mikill þrýstingur er á lögregluyfirvöld í Þýskalandi að uppræta slíka barnaníðsstarfsemi, bæði frá almenningi og stjórnvöldum sem hafa aukið fjármagn til lögregluyfirvalda í þeim tilgangi. Áður fyrr var það einungis minniháttar afbrot að deila barnaklámi en lögunum hefur verið breytt og nú er það flokkað sem glæpur.