Stærsta einstaka skref í tilslökunum á samkomubanni vegna kórónuveirunnar í Bretlandi var stigið í gær. Þar voru hárgreiðslustofu, veitingastaðir, kvikmyndahús og barir voru opnuð að nýju auk þess sem fólki var heimilt að heimsækja heimili annars fólks að nýju. Þá máttu kirkjur og trúarhof einnig opna, en að hámarki 30 mega sækja messur samtímis.
Breytingarnar á tilslökununum komu hvað best í ljós þegar líða tók á gærkvöldið og fólk streymdi út á næturlífið. Víða mátti sjá stappfullar götur af fólki sem var mætt út til að skemmta sér.
John Apter, formaður landssambands lögreglumanna, sagði við Guardian að ljóst væri að drukkið fólk geti ekki virt reglur um samskiptafjarlægð (e. social distance), en eins og meðfylgjandi myndir frá Soho hverfinu í London sýna virtu fjölmargir reglur um eins metra fjarlægð að vettugi.