Andrzej Duda, forseti Póllands, hefur naumt forskot á mótframbjóðanda sinn, Rafal Trzaskowski samkvæmt útgönguspám sem birtar voru í pólskum fjölmiðlum klukkan sjö. Samkvæmt þeim er Duda spáð 50,4 prósenta fylgi, en Trzaskowski 49,6 prósentum.
Kjörstöðum í forsetakosningunum í Póllandi var lokað nú klukkan sjö, en hér á landi geta pólskir ríkisborgarar kosið í sendiráðinu í Þórunnartúni til klukkan níu í kvöld.
Í samtali við mbl.is í gær sagði Pawel Bartoszek borgarfulltrúi að kosningarnar væru þær mest spennandi í manna minnum. Benti Pawel á að í útgönguspám væru aðeins íbúar í Póllandi spurðir, en reynslan sýni að brottfluttir Pólverjar sem búsettir eru í öðrum Evrópulöndum halli sér frekar að frjálslyndari frambjóðandanum.
„Í Bretlandi er því spáð að hann [Trzaskowski] sigri með 75% atkvæða og ég myndi halda að svipað yrði uppi á teningnum hér [á Íslandi],“ sagði Pawel. Væru mjótt á munum í útgönguspám gæti því farið svo að úrslit kosninganna lægju ekki fyrir fyrr en síðustu utankjörfundaratkvæðin eru talin á þriðjudag.