Portúgalska lögreglan leitaði á stöðum skammt frá þeim stað sem Þjóðverjinn Christian Brueckner dvaldi í húsbíl um skeið árið 2007 í liðinni viku. Hann liggur undir grun um að hafa komið að hvarfi Madeleine McCann sem hvarf úr íbúð fjölskyldunnar í Algarve-héraði í byrjun maí 2007. Meðal annars leitaði lögreglan með aðstoð kafara í brunnum á svæðinu að því er segir í frétt Guardian.
Á vef Guardian er meðal annars vísað í frétt Mirror um að brunnar sem ekki eru lengur í notkun hafi verið kannaðir klukkutímum saman á fimmtudag. Brunnarnir eru í Vila do Bispo, sem er í um 16 km fjarlægð frá hótelíbúðinni í Praia da Luz þar sem Madeleine hvarf 3. maí 2007. Dýpsti brunnurinn er um 13 metra djúpur.
Foreldrar Madeleine, Kate og Gerry McCann, hafa ekki fengið neinar upplýsingar um hvers vegna lögreglan ákvað að leita í brunnunum.
Rannsókn á hvarfi Madeleine hófst að nýju í júní þegar þýsk yfirvöld greindu frá því að Christian Brueckner væri grunaður um aðild að hvarfinu. Fram hefur komið að Þjóðverjinn, sem er 43 ára gamall, hafi sagt öðrum manni þar sem þeir sátu á bar að hann hafi átt aðild að hvarfi Madeleine. Eins hafi hann sýnt félaga sínum myndskeið af sér þar sem hann nauðgar 72 ára gamalli konu í Algarve árið 2005.
Í desember var hann dæmdur fyrir þá árás og fékk hann sjö ára fangelsisdóm sem hann hefur áfrýjað. Hann afplánar nú dóm fyrir fíkniefnaviðskipti en hefur áður verið dæmdur fyrir barnaníð. Þýskir saksóknarar telja að Madeleine sé látin og að sögn lögreglu er hvarf hennar þar í landi rannsakað sem morðrannsókn.
Aftur á móti lítur breska lögreglan enn á málið sem mannshvarf þar sem engar öruggar sannanir hafa komið fram um hvort hún er á lífi eða látin.
Saksóknari í Braunschweig, Hans Christian Wolters, segir að Christian Brueckner sé kynferðisglæpamaður sem hafi þegar verið dæmdur fyrir glæpi gegn litlum stúlkum og hann afpláni nú langan dóm. Wolters segir að hann hafi dvalið reglulega í Algarve-héraði frá 1995 til 2007 og að mestu framfleytt sér með glæpum, svo sem innbrotum á hótelum og íbúðum. Þýska lögreglan segist ekki telja að morðið hafi verið skipulagt fyrirfram.
Samkvæmt Guardian sýna gögn fram á að Christian Brueckner var í Algarve á þessum tíma því hringt var í portúgalskt farsímanúmer hans um það bil klukkustund áður en Madeleine hvarf. Síminn var í Praia da Luz þegar símtalið barst og varði það í 30 mínútur.
Kate og Gerry McCann hafa neitað því að hafa fengið bréf frá Wolters, sem stýrir rannsókninni í Þýskalandi, um að sannanir séu fyrir því að Madeleine sé látin. Þetta kemur fram á vefnum Find Madeleine og segja þau að þetta hafi valdið fjölskyldu og vinum óþarfa vanlíðan. Wolters segir aftur á móti að bréfið hafi verið skrifað til þeirra en hefur ekki upplýst um hvað standi í bréfinu.
Wolter segir að saksóknaraembættið hafi óyggjandi sannir fyrir því, en ekki líkamsleifar því til sönnunar, að Madeleine hafi verið drepin af Christian Brueckner.