Ghislaine Maxwell, fyrrverandi kærasta og samstarfskona barnaníðingsins Jeffrey Epstein, neitaði öllum sakargiftum fyrir dómi í dag. Maxwell er sökuð um að hafa tekið þátt í brotum Epsteins. Hún hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan í byrjun júlí og hefur alltaf haldið sakleysi sínu fram.
Maxwell er gefið að sök að hafa aðstoðað Epstein við að lokka ólögráða stúlkur á heimili þeirra þar sem hann hafi svo misnotað þær. Þá er hún einnig sökuð um að hafa tekið þátt í hluta af misnotkuninni.
Maxwell er 58 ára gömul og af breskum ættum. Hún var handtekin annan júlí síðastliðinn í stórhýsi sínu í Nýju Hampshire.
Réttarhöld yfir henni fara fram 21. júlí á 2021 og er viðbúið að þau muni taka þrjár vikur.
Eins og mbl.is greindi frá í gær hvöttu saksóknarar dómara til að framlengja gæsluvarðhald yfir Maxwell sem hefur óskað þess að henni verði leyft að yfirgefa fangelsið sem hún nú situr í og fara heldur í stofufangelsi. Saksóknarar sögðu mikla hættu á því að Maxwell myndi flýja enda á hún þrjú vegabréf og meira en tuttugu milljónir bandaríkjadala á nokkrum bankareikningum, þar á meðal erlendum bankareikningum.
Lögmenn Maxwell hafa þrýst á að henni verði sleppt gegn tryggingu og sagt að ekki sé hætta á því að hún flýi þrátt fyrir að hún hafi falið sig frá því að mál Epsteins kom upp á yfirborðið og fram að handtöku. Hún hafi verið að fela sig fyrir fjölmiðlum, ekki lögreglu.
Dómari mun skera úr um varðhald síðar.