Rúmlega tvær milljónir Brasilíumanna hafa greinst með kórónuveiruna en sérfræðingar vara við því að faraldurinn sé enn í hröðum vexti í landinu.
Alls hafa rétt tæp 77 þúsund látist af völdum kórónuveirunnar í Brasilíu en íbúar landsins eru um 210 milljónir.
Í frétt BBC kemur fram að fleiri tilfelli hafi eingöngu greinst í Bandaríkjunum.
Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, greindist smitaður af kórónuveirunni á dögunum. Hann kom fram í beinni útsendingu á Facebook-síðu sinni á miðvikudagskvöld þar sem hann sagðist enn vera með veiruna en væri þó einkennalaus.